Þóra Kristín Gunnarsdóttir

Píanóleikari

Þóra Kristín Gunnarsdóttir hefur komið fram á tónlistarhátíðum og
tónleikum víðsvegar um Sviss og Ísland. Á Íslandi hefur hún komið fram
m.a. á Sígildum sunnudögum og Velkomin heim í Hörpu, Klassík í
Vatnsmýrinni og á tónlistarhátíðinni Seiglu. Hún starfar aðallega við
kammertónlist en á árinu 2021 kom hún einnig fram sem einleikari með
ZHdK Strings í Sviss og í Hörpu auk þess að taka þátt í
Beethoven-tónleikaröð í Salnum í Kópavogi. Í Sviss hefur hún komið
fram m.a. á tónlistarhátíðinni Chesa Planta Musiktage og á tónleikum á
vegum Liedrezital Zürich. Síðastliðin fjögur sumur hefur hún verið
meðleikari á masterklassnámskeiðum fyrir söngvara í Frakklandi. Þóra
hóf tónlistarnám sitt á Akureyri hjá Dýrleifu Bjarnadóttur og lærði
síðar hjá Peter Máté við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk
meistaragráðu í píanókennslu og píanóleik með samspil sem aukagrein
frá tónlistarháskólanum í Luzern árið 2017. Árið 2020 lauk hún annarri
meistaragráðu í kammertónlist og meðleik frá listaháskólanum í Zürich,
þar sem aðalkennari hennar var píanóleikarinn Friedemann Rieger. Hún
sótti þar einnig tíma í ljóðameðleik hjá m.a. Christoph Berner. Hún
hefur sótt masterklassnámskeið hjá m.a. Thomas Hampson, Josef Breinl
og Ewa Kupiec. Þóra starfar sem meðleikari við Menntaskóla í tónlist
og kennir á píanó við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.

Previous
Previous

Unnsteinn Árnason