Jacek Karwan

Kontrabassaleikari

Jacek Karwan stundaði nám við Univeristät der Künste í Berlin og Hochschule für Musik í Basel. Jacek hefur komið víða fram og m.a. leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Podlasie fílharmóníunni, Reykjavík Midsummer Music tónlistarhátíðinni, Sígildir sunnu­dagar og á Euro kammertónlistarhátíðinni. Á námsárunum lék Jacek með hljómsveitum á borð við musicAeterna Orchestra, Gstaad Festival Orchestra, Gustav Mahler Jugendorchester, European Union Youth Orchestra, Pacific Music Festival Orchestra og Copenhagen Phil og kom m.a. fram á BBC Proms, Edinborgarhátíðinni, Salzburger Festspiele og Schleswig-Holstein tónlistarhátíðinni. Hann hefur leikið undir ölda þekktra stjórnenda, m.a. Sir Neville Marriner, Fabio Luisi, Neeme Järvi, Vladimir Ashkenazy, Teodor Currentzis og Philippe Jordan. Jacek er einn af stofnendum Polish Soloist Ensemble og hefur verið mjög virkur í Íslensku tónlistarlífi, meðal annars leikið með tónlistarhátíðinni Sumartónleikar í Skálholti, með hljómsveit Íslensku óperunnar, með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, með Reykjavík Orkestra og með Elju kammersveit. Hann er í virku samstarfi við pólska sendiráðið á Íslandi og heldur reglulega tónleika þar og kynnir pólska menningu á Íslandi. Jacek var áður leiðari við Gorzow fílharmóníuna en er nú fastráðinn hljóðfæraleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Previous
Previous

Guðbjartur Hákonarson

Next
Next

Bryndís Þórsdóttir