Vera Hjördís Matsdóttir
Sópran
Vera Hjördís Matsdóttir lauk meistaragráðu í klassískum söng á meistarastigi við Koninklijk Conservatorium Í Den Haag í Hollandi undir leiðsögn Frans Fiselier. Vera hlaut inngöngu á Opernfest Prague sem fór fram í júlí í fyrra þar sem Vera kom m .a. fram Í Smetana Hall í Prag ásamt sinfóníuhljómsveit hátíðarinnar. Vera var í hópi þeirra 16 afburða námsmanna sem hlutu námsstyrk frá Landsbankanum árið 2023. Vera var einnig valin sem styrkhafi úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen vorið 2020 þegar hún lauk bakkalárgráðu frá Listaháskóla Íslands. Kennarar hennar voru Hanna Dóra Sturludóttir, Kristinn Sigmundsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir and Þóra Einarsdóttir. Vera hefur sinnt ýmsum fjölbreyttum tónlistar tengdum verkefnum á Íslandi sem og erlendis. Vera er flytjandi í myndbandsverki Sigrúnar Gyðu Sveinsdóttur sem sýnt er um þessar mundir á Listasafni Reykjavíkur sem hluti af sýningunni D-vítamín. Vera er meðlimur í Trillutríóinu sem komu fram á tónleikum í maí síðastliðnum í Fríkirkjunni sem hluti af tónleikaröðinni ‘Á Ljúfum Nótum’. Vera kom fram sem einsöngvari á Jólasöngvum Kórs Akureyri í desember 2022 en einnig í þeim sama mánuði sem einsöngvari í Oratorio de Noël eftir Saint-Saëns í Den Haag. Vera tók þátt í frumflutningi á óperunni Skjóta eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur á Listahátíð í Reykjavík í júní 2024.