Kristín Sveinsdóttir
Mezzó sópran
Kristín Sveinsdóttir hóf að syngja árið 1997 með Krúttakór Langholtskirkju. Síðan þá söng hún með öllum kórum kirkjunnar og kom þar oft á tíðum fram sem einsöngvari undir stjórn Jóns Stefánssonar. Kristín lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík haustið 2013 undir leiðsögn Hörpu Harðardóttur og 2013- 2014 sótti Kristín söngtíma til Sigríðar Ellu Magnúsdóttur. Kristín söng bakraddir inn á Biophilia plötu Bjarkar Guðmundsdóttur og tók svo þátt í tveggja ára heims- og tónleikareisu sem fylgdi á eftir plötunni. Kristín tók einnig þátt í að stofna sönghópinn Lyrika og starfaði með honum þar til leiðin lá til Vínar. Haustið 2014 hóf Kristín Bacherlornám í klassískum söng við Tónlistarháskólann í Vínarborg hjá Prof. Margit Klaushofer. Kristín tók sér rúmlega ársleyfi frá skólanum í Vín til að syngja við óperustúdíóið Accademia del Teatro alla Scala í Mílanó. Þar kom hún fram sem einsöngvari á ýmsum tónleikum og óperuuppfærslum á Scala, m.a. sem 2. dama í Töfraflautunni eftir Mozart undir stjórn Adam Fisher, á árlegum jólatónleikum La Scala undir stjórn Franz Welser Möst og í uppfærslu á Der Rosenkavalier eftir Strauss undir stjórn Zubin Mehta. Kristín sneri aftur til Vínarborgar eftir tímann í Mílanó til þess að ljúka námi sínu. Hún söng í ýmsum óperuuppfærslum skólans, þ.á.m. Dorabellu í Così fan tutte, Hänsel í Hans og Grétu og Cherubino í Brúðkaupi Fígarós. Auk skólaverkefna kom Kristín reglulega fram sem einsöngvari í verkefnum víðsvegar um Austurríki. Hún sneri aftur til Ítalíu haustið 2019 og ferðaðist með La Scala óperunni til Shanghai þar sem uppfærsla Peter Steins af Töfraflautunni var flutt undir stjórn Diego Fasolis.
Kristín er nú búsett á Íslandi og stofnaði meðal annarra Kammeróperuna, nýtt tónlistarfélag sem hefur það að markmiði að skapa vettvang fyrir smærri óperuverkefni á Íslandi. Kristín er meðlimur í Kammerkvartettinum, Barbörukórnum í Hafnarfirði en kemur sömuleiðis reglulega fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri. Þá má nefna Óperugala á Sönghátíð 2022, opnunartónleika Seiglu í Eldborg 2022, hlutverk Ástu hertogaynju í óperunni Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur 2022, hlutverk Dorabellu í fyrstu óperuuppfærslu Kammeróperunnar, Óperukvöldverði - Così fan tutte eftir Mozart í Iðnó 2022 og Gamla bíó 2023, Mozart í maí í Hallgrímskirkju 2023 söng í Gilitrutt eftir Þórunni Guðmundsdóttir í október 2023 og Hans í ævintýraóperunni Hans og Grétu í nýrri uppsetningu Kammeróperunnar í Tjarnarbíó í desember.