Andri Unnarson
Búningar
Andri Unnarson er hönnuður og listamaður sem starfar mestmegnis með textíl. Hann útskrifaðist með BA-gráðu í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands og MA-gráðu frá Det Kongelige Akademi í Danmörku, með áherslu á endurnýtingu hráefna úr nærumhverfi. Hann vinnur að þróun aðferða hvað varðar endurnýtingu textíls á vinnustofu sinni í Kaupmannahöfn. Verk eftir Andra hafa verið sýnd á Hönnunarmars og Copenhagen Fashion Week, ásamt útstillingum í Magasin Du Nord og Riises Landsted. Undanfarið hefur hann í samstarfi við Karen Briem þróað stöðu sjálfbærnihönnuðar búninga innan atvinnuleikhúsa í sýningunum Temple of Appropriated Histories í Staatstheater Kassel, Parsifal í Staatsoper Hannover og Eddu í Þjóðleikhúsinu. Andri hefur einnig hannað sviðsklæðnað fyrir íslenskt tónlistarfólk, svo sem Hatara og Reykjavíkurdætur.