Jóna G. Kolbrúnardóttir
Sópran
Jóna G. Kolbrúnardóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún var ung að árum þegar hún hóf að syngja og hefur sungið í ýmsum kórum bæði sem meðlimur og einsöngvari. Hún lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2014 undir leiðsögn Hörpu Harðardóttur. Haustið 2014 hélt hún í framhaldsnám til Vínarborgar. Þar lauk hún sumarið 2018 Bakkalárgráðu við Tónlistarháskólann undir leiðsögn Univ. Prof. Gabriele Lechner. Jóna hefur tekið þátt í ýmsum meistaranámskeiðum m.a. hjá Anne Sofie von Otter, Christine Schäfer, Stephan Matthias Lademann og Regine Werner. Jóna hefur hlotið ýmsa styrki fyrir framúrskarandi árangur í söng meðal annars úr Tónlistarsjóði Rótarýs á Íslandi og einnig í Vínarborg. Hún útskrifaðist með meistaragráðu vorið 2021 frá Óperu Akademíunni við Konunglegu Óperuna í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Helene Gjerris og Susanna Eken. Jóna hefur verið sýnileg í tónlistarlífinu hérlendis síðustu ár. Hún hefur komið fram sem einsöngvari á þónokkrum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Síðast á Vínartónleikum sveitarinnar 2020 og á Klassíkin okkar 2021 sem sýndir voru í beinu streymi á RÚV. Jóna fór með frumraun sína hjá Íslensku Óperunni sem Gréta í óperunni “Hans og Gréta” árið 2018. En einnig hefur hún komið fram á Kúnstpásu tónleikum á vegum Íslensku Óperunnar og kom fram í annað sinn í þeirri röð fyrrihluta maí 2022. Hún fór með sitt fyrsta hlutverk við Konunglegu Óperuna í Kaupmannahöfn haustið 2020, þar sem hún söng Papagenu í Töfraflautunni eftir Mozart. Jóna er einn af stofnendum Kammeróperunnar sem er nýstofnað tónlistarfélag á Íslandi. Markmið Kammeróperunnar er að skapa vettvang fyrir smærri óperu verkefni en einnig hefur Jóna sungið í kvartett á vegum félagsins sem hefur nú þegar komið mikið fram í tónlistarlífinu á Íslandi. Síðast í byrjun júlí á Sumartónleikum í Skálholti og á Sumartónleikum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Í október 2022 fór hún með hlutverk Önnu í óperunni “Brothers” eftir Daníel Bjarnason sem flutt var í Eldborg á vegum Íslensku óperunnar. Sama mánuð fór Jóna með hlutverk Despinu í óperunni “Così fan tutte” eftir Mozart í fyrstu óperu uppfærslu Kammeróperunnar í Iðnó.