Oddur Arnþór Jónsson
Barítón
Oddur Arnþór Jónsson, barítón, hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2018 sem söngvari ársins fyrir hlutverk Michaels í Brothers, margverðlaunaðri óperu Daníels Bjarnasonar á Listahátíð 2018. Hann var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2014 fyrir Rodrigo í Don Carlo, sem var frumraun hans í Íslensku óperunni. Oddur lærði hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Alexander Ashworth í Söngskólanum í Reykjavík og lauk þaðan burtfararprófi. Hann stundaði framhaldsnám í óperu- og ljóðasöng við Mozarteum háskólann í Salzburg, Austurríki hjá Andreas Macco og Mörthu Sharp. Hann hlaut Lilli Lehmann
viðurkenninguna fyrir framúrskarandi meistarapróf frá Mozarteum Stiftung. Síðastliðið ár hefur hann sungið á Vínartónleikum Sinfóníunnar, barítónhlutverkið í Carmina Burana eftir Carl Orff með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Gunnsteini Ólafssyni, í Mozart Requiem með Mótettukórnum og Bjarna Frímanni Bjarnasyni, Lieder eines fahrenden Gesellen eftir Gustav Mahler í Fílharmóníunni í Berlín, aðalhlutverkið í Brothers eftir Daníel Bjarnason á Copenhagen Opera Festival og Silvio í Pagliacci í Óperuhúsinu í Ulm, Þýskalandi.
Við Íslensku óperuna hefur Oddur sungið titilhlutverkin í Don Giovanni og í Rakaranum frá Sevilla, Rodrigo í Don Carlo, Faðirinn í Hans og Grétu, Ned Keene í Peter Grimes, Greifann í Brúðkaupi Fígarós og Barone Douphol í La traviata. Önnur óperuhlutverk sem hann hefur sungið eru Wolfram í Tannhäuser og Kurwenal í Tristan und Isolde (Óperuhúsið í Chemnitz,
Þýskalandi), Schaunard í La bohème (Reisopera, Hollandi), Silvio í Pagliacci (Theater Ulm), Oreste í Iphigènie en Tauride og Prins Yeletsky í Pique Dame (Opernbühne Bad Aibling, Þýskalandi).
Sem ljóðasöngvari hefur hann flutt Das Lied von der Erde eftir Gustav Mahler í Garnier- óperunni í París, Vetrarferðina og Schwanengesang á Schubert hátíðinni í Vilabertran á Spáni og haldið ljóðatónleika á Britten-Pears hátiðinni og á Oxford Lieder Festival á Englandi. Hann hefur sungið bassahlutverkin í Jólaóratóríunni, H-moll messunni, Jóhannesar- og Mattheusarpassíunni eftir Bach, Messíasi og Solomon eftir Händel, Requiem og Krýningarmessunni eftir Mozart, Requiem eftir Faurè, Messa di gloria eftir Puccini, Petite Messe Solennelle eftir Rossini, Te Deum eftir Charpentier og Mysterium eftir Hafliða Hallgrímsson. Oddur hefur hlotið fjölda viðurkenninga í alþjóðlegum keppnum. Hann fékk Schubert verðlaunin og verðlaun sem besti ljóða- og óratóríu flytjandinn í Francesc Viñas keppninnni í Barcelona. Hann sigraði Brahms-keppnina í Pörtschach í Austurríki og varð þriðji í Schubert keppninni í Dortmund, Þýskalandi. Hann varð þriðji í Musica Sacra óratóríukeppninni í Róm og söng í úrslitum Belvedere keppninnar 2014. Hann hlaut námsstyrki frá Landsbankanum, Hamel- Stiftung í Hannover og Gianna-Szell í Salzburg.